Býrð þú í öðru norrænu landi og starfar um borð í flugvél í Danmörku?
Þessar upplýsingar eiga við þig sem ert búsettur í öðru norrænu landi og starfar um borð í flugvél í eigu norræns flugfélags í Danmörku. Upplýsingarnar varða aðeins skattlagningu af þessum tekjum.
Skattlagning í Danmörku
Launin eru undanþegin skattlagningu í Danmörku. Þetta á bæði við um innanlandsflug sem og flug á alþjóðaleiðum. Þú átt að upplýsa í danska framtalinu að þú greiðir skatt af þessum launum í heimalandinu.
Skattlagning í búsetulandinu
Launin eru skattskyld í búsetulandinu. Hafir þú fengið greidda dagpeninga vegna kostnaðar sem tengist vinnu þinni, gilda skattalög búsetulandsins þegar kemur að skattlagningu dagpeninganna.
Þú átt að telja fram launin og dagpeningana á framtali í búsetulandinu.
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem kveða á um hvar þú skulir vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við Tryggingastofnun í búsetulandinu eða borger.dk í Danmörku, til að fá nánari upplýsingar.