Býrð þú á Íslandi og starfar um borð í flugvél í öðru norrænu landi?
Þessar upplýsingar eiga við þig sem ert búsettur á Íslandi og starfar um borð í flugvél í eigu norræns flugfélags í öðru norrænu landi. Upplýsingarnar varða aðeins skattlagningu af þessum tekjum.
Skattlagning í landinu sem þú hefur ráðningarsamning í
Launin eru undanþegin skattlagningu í landinu sem þú hefur ráðningarsaming í. Þetta á bæði við um innanlandsflug sem og flug á alþjóðaleiðum.
Skattlagning á Íslandi
Launin eru skattskyld á Íslandi. Hafir þú fengið greidda dagpeninga vegna kostnaðar sem tengist vinnu þinni, gilda íslensk lög þegar kemur að skattlagningu dagpeninga umfram hámark frádráttar.
Þú átt að telja fram launin og dagpeningana á íslenska framtalinu, en færa jafnframt frádrátt samkvæmt skattmati RSK um ferðir á vegum launagreiðanda á eyðublaðið RSK 3.11.
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem kveða á um hvar þú skulir vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við Tryggingastofnun ríkisins (tr.is) eða sambærilega stofnun í því landi sem þú ætlar að vinna í til að fá nánari upplýsingar.