Býrð þú í öðru norrænu landi og starfar um borð í flugvél á Íslandi?
Þessar upplýsingar eiga við þig sem ert búsettur í öðru norrænu landi og starfar um borð í flugvél í eigu norræns flugfélags á Íslandi. Upplýsingarnar varða aðeins skattlagningu af þessum tekjum.
Skattlagning á Íslandi
Launin eru undanþegin skattlagningu á Íslandi. Þetta á bæði við um innanlandsflug sem og flugs á alþjóðaleiðum.
Skattlagning í búsetulandinu
Launin eru skattskyld í búsetulandinu. Hafir þú fengið greidda dagpeninga vegna kostnaðar sem tengist vinnu þinni, gilda skattalög búsetulandsins þegar kemur að skattlagningu dagpeninganna.
Þú átt að telja fram launin og dagpeningana á framtali í búsetulandinu, en þú ert einnig framtalsskyldur á Íslandi þó Ísland skattleggi ekki launin.
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem kveða á um hvar þú skulir vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við tryggingastofnun í því landi sem þú ætlar að vinna í eða Tryggingastofnun ríkisins (tr.is) til að fá nánari upplýsingar.