Býrð þú á Íslandi og starfar um borð í skipi sem er skráð í öðru norrænu landi og sem siglir á alþjóðaleiðum?
Þessar upplýsingar eiga við þig sem ert búsettur á Íslandi og starfar um borð í skipi, sem er skráð í öðru norrænu landi og sem siglir á alþjóðaleiðum. Upplýsingarnar varða aðeins skattlagningu af þessum tekjum.
Alþjóðaleiðir
Með hugtakinu á alþjóðaleiðum er átt við alla skipaflutninga nema þegar skipið er eingöngu í siglingum milli staða í einu norrænu landi.
Skattlagning í öðru norrænu landi
Þú ert skattlagður í því landi þar sem skipið er skráð.
Ef þú vinnur um borð í skipi sem er tekið á leigu án áhafnar (s.k. bareboat basis) af útgerð í öðru norrænu landi, ert þú skattlagður í því landi sem útgerðin er skráð í.
Skattlagning á Íslandi
Þú greiðir ekki skatt af tekjunum á Íslandi, en tekjurnar geta haft áhrif á skattlagningu annarra tekna.
Upplýsingar um skattlagningu tekna sem aflað er um borð í skipi sem sinnir verkefnum á norsku eða dönsku landgrunni, finnur þú undir fyrirsögninni „Býrð þú á Íslandi og starfar á norsku eða dönsku landgrunni"?
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem kveða á um hvar þú skulir vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við Tryggingastofnun ríkisins (tr.is) eða Tryggingastofnun í því landi sem skipið er skráð til að fá nánari upplýsingar.